1. LyricsPond
  2. Hlébarði

Hlébarði Lyrics



Læsir klónum líkt og hlébarði.
Læðist inni og úti í húsgarði.
Tyllir tánum - loðið lafandi skott.
Teygir úr sér gengur hljóðlega á brott.
Í mjúkum feldi mjakast freistandi.
Mjálmar stundarhátt er starandi.
Í hvikum kattaraugum óheflað.
Krefjandi athygli á stund og stað.
Sofnar, veit ekki af sér um stund.
Vaknar eftir fegurðarblund.
Læðist, veitt ekki af henni um stund.
Hleypur hverfur í húsasund.
Hin villta eðlishvöt í kvendýri býr.
Krafsar í holdið hér fer tígrisdýr.
Tyllir tánum - loðið lafandi skott.
Teygir úr sér gengur hljóðlega á brott.
Sofnar...
Leggur út netið
skríður í fletið.
Leggur á ráðin
bráðum sofnar.



Send Hlébarði Ringtone to your Cell